Í september síðastliðnum, nánar tiltekið þann 09.09.09, samþykkti vinnuhópur veitnanna nýja útgáfu svokallaðs dæmingalista fyrir skoðanir raforkuvirkja, útgáfu 2009-1. Gerðar voru minni háttar breytingar á þeim lista sem samþykktur var haustið 2007, breytingarnar byggðu einkum á reynslu af notkun listans árið 2008. Dæmingalistinn er hliðstæður stöðluðum lista sem notaður er við bifreiðaskoðanir, en reyndar nokkuð ítarlegri. Vinnuhópur veitnanna er skipaður fulltrúum RARIK, Hitaveitu Suðurnesja, Orkuveitu Reykjavíkur, Norðurorku og DMM Lausna.
Hér gefur að líta hina nýju útgáfu dæmingalistans.
Til baka