Rammasamningur við OR 3. desember 2009

Í síðastliðnum mánuði gerðu Orkuveita Reykjavíkur og DMM Lausnir með sér rammasamning um hugbúnaðarþjónustu og ráðgjöf. Orkuveita Reykjavíkur hefur notað DMM í rúmlega 10 ár. Notkunin var fyrst bundin við Nesjavallavirkjun, en hefur síðar breiðst út og nær nú til Nesjavallar- og Hellisheiðarvirkjunar, heitavatnsframleiðslu, rafmagnsskoðunar, heitavatnsdreifingar og kaldavatnsdreifingar á höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi og Suðurlandi. Með þessum samningi er öll notkun kerfisins, sem og ráðgjöf, felld undir einn samning sem felur í sér einföldun fyrir báða aðila og góðan ramma fyrir gott samstarf fyrirtækjanna.

 

 

 

 



Til baka