DMM tekið í notkun fyrir hita- og vatnsveitu HS Veitna 10. mars 2010

Í síðasta mánuð var gengið frá samkomulagi DMM Lausna og HS Veitna þess efnis að HS Veitur munu nota DMM til að halda utan um eftirlit og viðhald á búnaði hita- og vatnsveitu HS Veitna. Fyrir nota HS Veitur DMM fyrir rafmagnsdreifikerfi fyrirtækisins og HS Orka notar DMM fyrir Svartsengi og Reykjanes. Þess má til gaman geta að Svartsengi er "vagga" DMM, en þróun DMM hófst í Svartsengi árið 1992. Í því ljósi er hér um að ræða skemmtileg tímamót, að 19 árum síðar hefur DMM verið tekið í notkun fyrir allar aflstöðvar og öll dreifikerfi HS Orku og HS Veitna. DMM er nú þegar notað fyrir dreifikerfi hita- og vatnsveitu hjá Orkuveitu Reykjavíkur og Norðurorku.

 

 

 

 

 

 

 

 



Til baka