Euromaintenance 2010 Verona Ítalíu 31. maí 2010

Evrópusamtök viðhaldsstjórnunar, EFNMS, héldu nú í maí ráðstefnu um viðhaldsstjórnun, Euromaintenance 2010. Ráðstefna sem þessi er haldin annað hvert ár og var þetta skiptið haldinn í Verona á Ítalíu dagana 12. - 14. maí. Það er mat margra að þetta sé jafnan ein besta ráðstefna sinnar tegundar í Evrópu. Á ráðstefnunni voru fluttir 118 fyrirlestrar, fyrirlesararni komu frá 31 landi. Meginþema ráðstefnunnar var skipt í 6 hluta:

  • Heilsa og öryggi
  • Stefnur í viðhaldsstjórnun
  • Árangursríkar viðhaldsaðferðir
  • Viðhaldsstjórnun
  • Frumkvöðlastarf og samanburðafræði
  • Nýjungar í viðhaldsstjórnun

Framkvæmdastjóri DMM Lausna, Guðmundur Jón Bjarnason, fór til Ítalíu og sótti þangað ýmsa gagnlega mola varðandi strauma og stefnum sem munu nýtast við síþróun DMM, við mótun ferla og skýrslugjafar innan DMM sem og á ýmsan máta á þeim vettvangi viðhaldsstjórnunar sem DMM Lausnir starfa á.

 

 

 

 

Formaður EFNMS, H. Klemme-Wolff og fleiri góðir menn

 

 

 

Arena, hið þekkta hringleikahús í Verona

 

 

 

Guðmundur í Verdi ráðstefnusalnum í Verona Fiere

 

 

 

 

 

Frá miðbæ Verona

 



Til baka