Það var frækinn hópur DMM veiðimanna sem lagði stund á stangveiði í Stóru - Laxá um síðustu helgi, 2. og 3. september. Stóra - Laxá liggur um ægifagurt landsvæði og veðrið lék við okkur, þá sérstaklega fyrri daginn. Ýmis tilþrif litu dagsins ljós bæði í klæðaburði og á árbakkanum, inn á milli nýgræðinga í stangveiðisportinu var að finna þaulreynda veiðimenn. Veitt var á flugu, spún og maðk, eða öllu heldur þá var reynt að veiða á flugu, spún og maðk. Það tókst að landa tveimur 5 punda löxum, báðir veiddust á maðk. Ferðin var virkilega skemmtileg, enda vart annað mögulegt í þessum félagsskap og þessari náttúru.





.JPG)




Til baka