DMM Lausnir hafa í nokkur misseri unnið að samræmingu á skýrslugjöf eftir skoðanir raforkuvirkja. Þessi samræmingarvinna hefur verið unnin með Hitaveitu Suðurnesja, Orkuveitu Reykjavíkur, Landsvirkjun, RARIK, Frumherja og Rafskoðun. Markmið þessarar vinnu hefur verið fjölþætt:
- Taka saman í svokallaðan „dæmingalista“ dýrmæta reynslu til margra ára, sem mun gagnast mönnum við skoðanir og sem kennslugagn fyrir nýja skoðunarmenn.
- Samþætta vinnubrögð veitna og skoðanastofa og stuðla þannig að betra upplýsingaflæði og meiri hagkvæmni við útfærslu skoðana og eftirfylgni í kjölfar skoðana.
- Viðhalda fagmennsku við skoðanir.
- Útfæra einfalt, gegnsætt og rekjanlegt ferli í DMM, sem nær allt frá útfærslu skoðana til lagfæringa í kjölfar skoðana, þ.e.a.s. lagfæringar á þeim atriðum sem stóðust ekki skoðun.
Í nóvember síðastliðnum kláraðist mikilvægur áfangi í þessari vinnu, þegar staðlaður dæmingalisti leit dagsins ljós og ofantaldir aðilar ákváðu að styðjast allir við þann lista við útfærslu rafskoðana frá og með 1. janúar 2008. Líta má á listann sem nokkurs konar viðauka við Reglur um skoðun raforkuvirkja, „Bláu bókina“. Listinn mun verða gerður aðgengilegur öllum þeim aðilum sem hann vilja nota.
Ferlið hefur verið útfært í DMM og nýi dæmingalistinn settur inn í kerfið. Við teljum þessa vinnu gríðarlega mikilvæga þar sem hún muni gera rafskoðanir enn gegnsærri, markvissari, gagnlegri og hagkvæmari.
.JPG)
Til baka