Ölgerðin velur DMM 1. febrúar 2008

 

 

Ölgerðin hefur valið DMM til að hafa umsjón með viðhaldi á framleiðslulínu fyrirtæksins. Ölgerðin er eitt stærsta fyrirtækið á sínu sviði og framleiðir, flytur inn, dreifir og selur matvæli og sérvöru af ýmsum toga. Fyrirtækið leggur áherslu á að vörur fyrirtækisins séu fyrsta flokks og að viðskiptavinir þess geti gengið að hágæða þjónustu vísri.  Aðeins vörur sem eiga þess kost að vera fremstar í sínum flokki eru settar á markað og hverjum birgja sinnt sem hann væri sá eini. Stöðugt er leitað nýrra leiða til að efla starfsemina og ná fram meiri framleiðni með því að gera hlutina betur og fyrr en aðrir. Þetta er gert til hagsbóta fyrir viðskiptavini , neytendur, starfsfólk og eigendur og segja má að kaup Ölgerðinnar á DMM hugbúnaðarkerfinu séu liður í þessari vinnu, sem miðar að stöðugum betrumbótum.  DMM Lausnir bjóða Ölgerðina velkomna í hóp ánægðra viðskiptavina.

 

 

 



Til baka