Gott síðasta ár - Skemmtilegar nýjungar 1. september 2008
Aðalfundur DMM Lausna ehf. var haldinn óvenju seint þetta árið, eða nú í lok ágústmánaðar. Eins og fram kom á aðalfundi, þá gekk rekstur DMM Lausna vel á síðasta ári og var afkoma fyrirtækisins sú besta í sögunni. Stjórn og starfsmenn sjá fram á að árið 2008 verði að öllum líkindum enn betra. DMM kerfið keyrir örugglega hjá öllum viðskiptavinum og á hverju ári líta skemmtilegar nýjungar dagsins ljós, eftir því sem ný tækni býður og í takt við óskir viðskiptavina um fleiri einingar til að takast á við ný og breytt verkefni. Í ár hefur m.a. verið gert mögulegt að samkeyra dreifða grunna, jafnvel þó þeir séu ekki sítengdir, vefgáttin hefur verið styrkt enn frekar og í september verður kynnt til sögunnar ný nálgun á bilanagreiningu, sem er í senn einföld og öflug.

Til baka