Notkun DMM hefur aukist að umfangi á því ári sem er að líða, talið í fjölda vinnustaða og í fjölda notenda. Það sem hefur leitt þess aukningu, öðru fremur, sýnist okkur vera vaxandi áhugi fyrirtækja á eftirliti og þá sér í lagi eftirlit með eignum fyrirtækja, framleiðslueiningum og þjónustu. Við fáum sífellt fleiri fyrirspurnir frá fyrirtækjum sem vilja nýta DMM til að halda utan um ýmsa eftirlitsþætti, enda hentar DMM ákaflega vel fyrir eftirlit af ýmsu tagi þar sem kerfið var frá upphafi hannað til að þjóna þörfum viðhalds og eftirlits. Þar við bætist að vefgátt DMM hefur notið vinsælda síðustu ár, sem skýrist fyrst og fremst af einföldu notendaviðmóti, sveigjanleika við gerða gátlista af ýmsu tagi og gegnsæi og skilvirkni við afgreiðslu frávika sem eftirlit leiðir í ljós.
Það er út af fyrir sig ekki óeðlilegt að fyrirtæki gefi eftirliti með kjarnastarfssemi sinni meiri gaum nú en oft áður. Eftir tímabil uppbyggingar og nýframkvæmda, þá hefur fókusinn færst á hagkvæmni, skilvirk vinnubrögð, nýtingu mannauðs, eigna og aðfanga og góða þjónustu við viðskiptavini. Markvisst eftirlit getur verið til þess fallið að bæta frammistöðu fyrirtækja á þessum sviðum, sem aftur getur tryggt fyrirtækinu forskot á samkeppnisaðila. Það er eftir sem áður mikilvægt að fyrirtæki hlúi að vaxtarmöguleikum. Við hjá DMM Lausnum tölum oft um okkar á milli að „bæði sé betra“ og vísum þar til reynslu okkar af þróunarverkefnum þar sem valið á milli virkni A EÐA B leiðir oft á tíðum til niðurstöðu A OG B, þ.e.a.s. boðið er upp á báða möguleika. Þessi stutti frasi á víða við í viðskiptalífinu, fyrirtæki geta til að mynda verið frammistöðumiðuð OG mannvæn, áhættusækin OG með vaðið fyrir neðan sig og sinnt vaxtarmöguleikum OG verið með hagkvæman og skilvirkan rekstur, sem er veitt aðhald með eftirliti eins og við á hverju sinni.
Til baka