Gleðileg jól :-) 23. desember 2008

Starfsmenn DMM Lausna óska öllum gleðilegra jóla. Við höfum í gegnum tíðina stutt góðgerðarmál af ýmsu tagi. Þetta árið höfum við auk þess tekið upp þann góða sið margra fyrirtækja að styrkja gott málefni um jólin. Við slepptum gjafakaupum fyrir starfsmenn, stjórn og tengiliði fyrirtækisins og báðum Mæðrastyrksnefnd um að ráðstafa fyrir okkur því fjármagni sem ella hefði farið í gjafakaup, auk viðbótarframlags frá starfsmönnum. Það er okkur heiður að aðstoða það góða fólk sem vinnur óeigingjarnt sjálfboðastarf fyrir hönd góðgerðasamtaka og íþróttafélaga til að bæta það samfélag sem við búum í.

 

 

 



Til baka