Norðurorka bætist í hópinn 16. mars 2009

 

 

Norðurorka, www.no.is , hefur bæst í hóp veitufyrirtækja sem nota DMM fyrir eignaumsýslu, eftirlit,  viðhalds- og verkstjórnun. Samstarf DMM Lausna og veitufyrirtækja hefur verið farsælt, allt frá stofnun fyrirtækisins, og sjáum við fram á að Norðurorka muni njóta góðs af ávöxtum þess samstarfs og eins að önnur veitufyrirtæki og aðrir viðskiptavinir muni þegar fram líða stundir njóta góðs af hugmyndum og tillagi Norðurorkumanna. Það er styrkur okkar sem hugbúnaðarframleiðanda að vera í nánu samstarfi við viðskiptavini okkar og leggja okkur fram við að skilja ferli þeirra, viðfangsefni, óskir og tillögur. Við lítum á það sem okkar hlutverk að vinna hvað best við getum úr óskum okkar viðskiptavina, veitufyrirtækja og annarra fyrirtækja, á þann máta að það styrki DMM fyrir allan notendahópinn, enda er það stefna fyrirtækisins að bjóða eitt sterkt kerfi fyrir alla notendur sem er hægt að stilla hratt og örugglega að þörfum hvers og eins án þess að til komi dýr forritunarvinna. Þannig tryggjum við að allir eigi aðgang að góðum viðbótum við kerfið. Við bjóðum Norðurorkumenn hjartanlega velkomna í hópinn og sjáum fram á skemmtilegt og gefandi samstarf.



Til baka