Þann 10. ágúst síðastliðinn varð VIlli þrítugur. Myndin hér að neðan er tekin við það tækifæri. Myndin er tekin heima hjá Villa, sem hefur verið að byggja þennan flotta pall í sumar. Innilega til hamingju Villi, með árin 30 og með pallinn ;)

Hin árlega veiðiferð DMM Lausna þetta árið var farin nú um miðjan ágúst, nánar tiltekið í Þverá í Fljótshlíð. Líkt og fyrri sumur, þá fengum við gott veður og stemmingin að vanda mjög góð. Við slógum veiðimet, alls fékk hollið 4 laxa, sem voru á bilinu 2 - 2,5 kg. Myndirnar hér að neðan voru teknar í ferðinni, má þar meðal annars sjá Gumma hampa Maríulaxinum, en hann hafði fram til þessa komið heim tómhentur.






Til baka