Fréttir af aðalfundi og kerfisnýjungum 20. ágúst 2009

Aðalfundur DMM Lausna var haldinn miðvikudaginn 19. ágúst. Þar kom fram að rekstur síðasta árs gekk vel, enn betur en árið þar á undan sem þó var metár. Þessu er ekki síst að þakka að DMM keyrir örugglega hjá okkar viðskiptavinum og hefur notkun þess breiðst út hjá núverandi viðskiptavinum, og til nýrra viðskiptavina, sem enn af hornsteinum skipulags eftirlits, viðhalds og betrumbóta. Helstu kerfisnýjungar síðasta árs féllu í góðan jarðveg hjá viðskiptavinum, en þessar nýjungar lutu einkum að nýjum farvegum fyrir skráningu ótitlækis og bilana. Það skiptir miklu máli að hafa slíka farvegi sem rennilegasta, enda er metnaðarmál að hafa jafnan tiltækar greinagóðar skýrslur fyrir tiltæki kerfiseininga og tíðni bilana og meðhöndlun þeirra. Slíkar skýrslur endurspegla árangur eftirlits og viðhalds og er nauðsynleg endurgjöf til að stuðla að góðri útkomu og sækja sífellt fram á við.

 

Þetta rekstrarár hefur farið vel af stað og gerum við ráð fyrir að útkoma þess verði góð líkt og undanfarinna ára. Við teljum að lakari staða efnahagslífsins muni ekki hafa mikil áhrif á afkomu fyrirtækisins, enda er mikilvægi skipulags eftirlits og viðhalds síst minna þegar þrengir að. Góð viðhaldsstjórnun er arðbær fjárfesting. Líkt og fyrri ár, þá keyrum við ákveðið þema á hverju ári sem skilar nýjum og breyttum kerfiseiningum. Þema þessa árs er áætlanagerð með fókus á mannauðs-ávöxtun og mannauðs-stjórnun og markvissa skýrslugjöf þar að lútandi. Þetta er að vissu leiti framhald af þema síðasta árs, þá var fókusinn á tækjabúnaðnum, en nú er hann færður yfir á starfsmennina. Þessar áherslur kallast á, enda er markmið viðhaldsstjórnunar og eftirlits að stuðla að skilgreindu tiltæki og lifitíma tækja, OG EKKI SÍÐUR að tryggja og viðhalda þekkingarstigi starfsmanna.



Til baka