DMM Lausnir ehf. héldu haustráðstefnu á vettvangi viðhaldsstjórnunar í Eldborg Bláa Lóninu, fimmtudag 14. október. Ráðstefnan var endurtekin fyrir RARIK í Reykjavík 28. október og 3. desember.

 

Yfirskrift ráðstefnunar var "Molar". Lögð var áhersla á stutt og snaggaraleg erindi þar sem fram koma ýmsir molar frá Euromaintenance 2010, sem og molar frá fulltrúum íslenskra fyrirtækja. Euromaintenance er ráðstefna sem haldin er annað hvert ár af EFNMS, samtökum viðhaldsstjórnunar í Evrópu, og er af mörgum talin sú besta sinnar tegundar í álfunni.

 

Viðhaldsstjórnun hefur á undanförnum misserum notið vaxandi athygli, enda felast mikil verðmæti í markvissri viðhaldsstjórnun. Markmið okkar með þessari ráðstefnu var að:

 

·        Bjóða stjórnendum, millistjórnendum og starfsmönnum á sviði viðhaldsstjórnunarmála og eftirlits upp á fróðlega, gagnlega og skemmtilega ráðstefnu

·        Blása mönnum í brjóst og ýta undir metnað á sviði viðhaldsstjórnunar

·        Ýta undir samstarf og skoðanaskipti á sviði viðhaldsstjórnunar og eftirlitsmála

 

Vel tókst til með ráðstefnuna, fjöldi ráðstefnugesta var rétt innan við 80 manns frá 16 fyrirtækjum og stofnunum.  Það var það almennt mat ráðstefnugesta að þörf væri fyrir ráðstefnur af þessu tagi þar sem viðhaldsstjórnun væri í brennidepli. Guðmundur Jón Bjarnason, framkvæmdastjóri DMM Lausna, kynnti mola frá Euromaintenance 2010. Guðmundur S. Pétursson, gæðastjóri Landsvirkjunar, kynnti öryggisstjórnun hjá Landsvirkjun. Þrándur Rögnvaldsson, viðhaldssérfræðingur hjá Landsvirkjun, kynnti strauma og stefnur í viðhaldsmálum. Sæmundur Guðlaugsson, viðhaldsstjóri virkjana Orkuveitu Reykjavíkur, kynnti ástandsgreiningar hjá Orkuveitunni. Bjarni Ellert Ísleifsson kynnti FVSÍ, Félaga Viðhaldsstjórnunar á Íslandi og Eyvindur Jónsson, DMM Solutions Sviss, kynnti sýna starfssemi. Ráðstefnugestir gerðu góðan róm að öllum þessum erindum og kunnum við fyrirlesurunum öllum kærar þakkir fyrir.

 

Í vinnuhópum kom ýmislegt fram, meðal annars:

 

  • Áhættugreining best útfærð með aðkomu starfsmanna
  • Áhætturgreining verka mikilvæg, áður en verk eru framkvæmd
  • Mikilvægt að fyrirtæki hafi skýra viðhaldsstefnu.
  • Svokallaður SAMI pýramýði, sem metur "viðhaldsstjórnunarþroska" fyrirtækja athygliverður
  • Æskilegt að til staðar séu farvegir til að vinna úr og bregðast við niðurstöðum áreiðanleika- og bilanagreininga
  • Nota snjallar leiðir til að nýta vinnukrafta góðra viðhaldsmanna sem best, meðal annars æskilegt að nýta betur gögn frá rekstri og truflunum
  • Áætlanagerð, gæta þarf að því að setja nægan tíma í áætlanagerð
  • Eigendatilfinning gagnvart tækjabúnaði mikilvæg
  • Joel Leonard og fleiri hafa bent á alls staðar vantar fleiri vélfræðinga, rafvirkja, pípara og almennt flotta tæknimenn. Á hverju ári hætta fleiri, aldurs vegna, en bætast við
  • Að nýta verktaka krefst skipulags, tíma og natni
  • Skema fyrir viðhaldsstjórnunarverðlaun, sbr. gæðastjórnunarverðlaun, er athyglivert þar sem það kortleggur ágætlega það sem mestu máli skiptir í viðhaldsstjórnun.
  • Mikilvægt að viðhalda og auka þekkingu á sviði viðhaldsstjórnunar í landinu, sérstaklega m.t.t. kynslóðaskipta
  • Auka þarf samvinnu iðnfyrirtækja sérstaklega m.t.t. þekkingaröflungar og þekkingarmiðlunar
  • Skólakerfið er ekki að uppfylla þarfir iðnaðarins gagnvart kennslu í viðhaldsstjórnun
  • Talsmenn viðhaldsstjórnunar þurfa að "selja" viðhaldsstjórnun sem spennandi starfssvið, sem það sannarlega er
  • Skýr áhugi er fyrir því að starfrækt sé félag á borð við FVSÍ, það kom einnig fram í mati ráðstefnugesta að ráðstefnu lokinni

 

 

Fyrirlestrar:

 

Fyrirlestrar Guðmundar DMM

Fyrirlestur Ásgeir Þór RARIK

Fyrirlestur Guðmundar LV

Fyrirlestur Þrándur LV

Fyrirlestur Saemundur OR

Fyrirlestur Bjarna Alcoa

Fyrirlestur Eyvindur

Fyrirlestur Ingi RARIK 

 

Valdar greinar sem vísað var í:

 

Benchmarking best practice toward a total management reward

Best practices in hydropower plant maintenance

Big M and the performance culture

Certification of maintenance and asset management professionals

Experiences regarding the harmonization of maintenance processes

How to improve the use of your CMMS

Maintenance engineering and predictive mnt development on high critical equipment

Maintenance organisation design

Successful maintenance auditing and benchmarking

Usage of RFID in maintenance processes  

 

  

Í lok ráðstefnunar fylltu ráðstefnugestir út matsblað, sem að meðatali skilaði eftirfarandi niðurstöðu:

  • Heildareinkunn ráðstefnu: 8,1 af 10
  • Fyrirlesarar þekktu til efnisins: 4,5 af 5
  • Fyrirlesarar komu efninu vel til skila: 4,3 af 5
  • Ráðstefnan var vel skipulögð: 4,6 af 5
  • Hraði yfirferðar var við hæfi: 4,0 af 5
  • Molar munu gangast mér persónulega: 3,8 af 5
  • Molar munu gagnast mér við vinnu: 3,8 af 5
  • Vinnuhópar komu vel út: 4,0 af 5
  • Þátttaka í vinnuhópum var gagnleg: 4,0 af 5 
  • Allir þeir sem tóku afstöðu, meirihluti svarenda,  höfðu hug á að sækja aðra ráðstefnu þar sem farið væri i valda mola
  • Allir sem tóku afstöðu, meirihluti svarenda, töldu þörf á Félagi viðhaldsstjórnunar á Íslandi.

 

Myndirnar hér að neðan eru frá ráðstefnunni í Eldborg. DMM Lausnir þakka ráðstefnugestum fyrir komuna og góðar umræður.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Dagskrá.