DMM, Dynamic Maintenance Management system, er upplýsingakerfi fyrir eftirlit, verkstjórnun, viðhaldsstjórnun og gæðastjórnun. DMM felur í sér:

  • Verkstjórnun, til að skipuleggja vinnu og miðla verkefnum til starfsmanna
  • Gátlista og skýrslur, fyrir eftirlit og staðlaða skýrslugjöf
  • Skjalastýringu, fyrir verklýsingar
  • Lagerkerfi, til að halda utan um varahluti og varahlutanotkun
  • Tímaskráningu, til að halda utan um tímaskráningu starfsmanna
  • Rekjanleika, til að uppfylla kröfur gæðastjórnunarkerfa
  • Vefgáttir fyrir miðlun verkefna, skráningar og skýrslugjöf
Staðreyndir um DMM:

  • Þróun DMM hófst 1993 og frá þeim tíma hefur DMM orðið eitt þekktasta og virtasta viðhaldsstjórnunar- og eftirlitskerfið á Íslandi.
  • DMM hentar fyrirtækjum sem vilja beita skipulegu viðhaldi og eftirliti til að hækka þjónustustig og til að hámarka arðsemi og áreiðanleika tækjabúnaðar og fasteigna.
  • DMM hentar fyrirtækjum í iðnaði, sjávarútvegi, orkuvinnslu, dreifikerfum, fjarskiptum, fasteignaumsýslu og þjónustu af ýmsu tagi.
  • DMM lausnir tefla fram einstaklingum sem hafa menntað sig og sérhæft á sviði viðhaldsstjórnunar og gæðastjórnunar.

 

DMM auðveldar fyrirtækjum að henda reiður á tæki, fasteignir og þjónustuþætti og verkefni þar að lútandi. DMM er notað af ýmsum aðilum, til að mynda þeim sem listaðir eru hér að neðan. Á undirliggjandi síðum gefur að líta nokkur dæmi um það hvernig DMM er notað hjá ýmsum aðilum.

 

 

Orkuframleiðsla:

Landsvirkjun

Orkuveita Reykjavíkur

Hitaveita Suðurnesja

Norðurorka

 

Fasteignir:

Bláa lónið

 

Rafmagnsdreifing:

RARIK 

Hitaveita Suðurnesja

Norðurorka

 

Framleiðsla drykkjarumbúða:

BES

 

Fjarskiptafyrirtæki:

Farice

 

Drykkja og matvælaframleiðsla:

SS

Ölgerðin

 

Hitaveitur

Orkuveita Reykjavíkur

Hitaveita Suðurnesja

Norðurorka