DMM hefur einfaldað til muna alla skráningarvinnu gæðaeftirlits og um leið aukið skilvirkni og áreiðanleika þar sem komið hefur verið í veg fyrir innsláttarvillur. Sjálfvirk úrvinnsla mælinga með skýrslum DMM sparar okkur mikinn tíma og pening sem við í dag nýtum mun betur í annað! Vottun Coca Cola Interational staðfestir að DMM hefur gert okkur mögulegt að uppfylla kröfur sem til okkar eru gerðar varðandi stjórnun og eftirlit með gæðum framleiðslunnar.
- Óli Pétur Framkvæmdastjóri BES

 

 

 

 

BES ehf er framleiðandi á preformum. Preform eru grunn¬framleiðsla á plastflöskum sem síðar eru hituð upp og blásin út í þau form sem henta, t.d. gosflöskur, vatnsflöskur og fleira slíkt.

BES framleiðir preform fyrir Vífilfell og fleiri. Coca Cola Inernational og Vífilfell gera miklar kröfur til skilvirks eftirlits og gæða. Til að mæta þeim kröfum og til að stýra viðhaldsvinnu á tækjabúnaði, þá ákvað BES ehf að kaupa og innleiða DMM sem viðhaldsstjórnunarkerfi og nýta það einnig sem hornstein gæðakerfis fyrirtækisins. BES hefur nú farið í gegnum úttektarferli Coca Cola International á gæðakerfinu og staðist hana með sóma og án athugasemda þar sem allir ferlar í framleiðsluferlinu, eftirlitsferlar og gæðastjórnun stóðust þær kröfur sem settar voru fram.
Auk þess að halda utan um gæðamál og mælingar þeim tengdum heldur DMM einnig utan um alla vinnu sem unnin er í fyrirtækinu varðandi hreinlætis¬áætlanir og almennt viðhald á tækjum og öðrum eignum fyrirtækisins.

Mikilvægi DMM Í stuttu máli:

  • DMM hefur gert BES mögulegt að standast kröfur Coca Cola International, sem var gríðarlega þýðingarmikill áfangi fyrir fyrirtækið.
  • DMM sparar BES á hverjum degi dýrmæta manntíma við stjórnun og eftirlit með framleiðslu fyrirtækisins. 
  • DMM er notað til að skipuleggja og halda utan um verk sem unnin eru í fyrirtækinu, hvort sem það eru verk sem endurtaka sig reglulega, eða til-fallandi verk. 
  • DMM er notað til að skipuleggja útfærslu eftirlits og mælinga og halda utan um allar niðurstöður.
  • DMM geymir framleiðslugögn og býður staðlaðar skýrslur, til dæmis skýrslur fyrir framleiðslu og eftirlit sem eru afhentar viðskiptavinum. Sjá sýnishorn hér að neðan.