
Það sem einkennir samband DMM Lausna og Landsvirkjunar er traust, góð samvinna og gagnkvæm virðing, þar sem báðir aðilar leggja mikinn metnað í að DMM skili Landsvirkjun sem mestum árangri á sviði viðhaldsstjórnunar. – Einar Mathiesen, yfirmaður reksturs aflstöðva Landsvirkjunar

DMM kemur mikið við sögu í daglegri starfssemi í aflstöðvum, þar sem öll verkefni sem varða rekstur og viðhald eru skipulögð og gerð upp í DMM. Í stuttu máli, þá gegnir DMM eftirfarandi hlutverkum hjá Landsvirkjun:
Gæðastjórnun
DMM er mikilvægur hluti ISO-9001 gæðakerfis Landsvirkjunar og er notkun kerfisins útlistuð í gæðaskjölum fyrirtækisins.
Skráning búnaðar og kerfa
Aflstöðvar og tækjabúnaður er skráður í DMM, á grundvelli svokallaðs KKS skráningarkerfis.
Vinna starfsmanna í aflstöðvum
Vinna, sér í lagi vinna í tengslum við eftirlit og fyrirbyggjandi viðhald, er skipulögð og skráð í DMM. Vinnuskýrslur eru skráðar í DMM.
Skráning vinnutíma
Allir vinnutímar starfsmanna í aflstöðvum eru skráðir í DMM og síðan fluttir rafrænt yfir í launabókhald fyrirtækisins.
Truflanaskráning
Truflanir eru skráðar í DMM og á grundvelli skráningarinnar birtir DMM ýmsar skýrslur og tölfræði truflana.
Saga
Viðhaldssaga kerfa og tækjabúnaðar safnast upp í DMM og er aðgengileg og flokkanleg á ýmsan máta.
Samræmd notkun
Allir starfsmenn aflstöðva Landsvirkjunar, um land allt, nota DMM.