
Guðmundur Jón Bjarnason, MSc og MBA, gjb(hjá)dmm.is, 864 9102 Guðmundur er framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Hann er með BSc gráðu í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands frá 1993 og MSc gráðu í rafmagnsverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet árið 1996 og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík 2007. Guðmundur vann hjá Landsvirkjun áður en hann gekk til liðs við DMM Lausnir árið 2000. Hjá Landsvirkjun vann hann meðal annars að uppbyggingu gæðakerfis Landsvirkjunar og við áætlunargerð í tengslum við rekstur raforkukerfisins. Guðmundur hefur setið margvísleg námskeið á sviði verk-, gæða- og viðhaldsstjórnunar og unnið verkefni fyrir ýmis fyrirtæki á þeim sviðum. Sem ráðgjafi og framkvæmdastjóri DMM Lausna hefur Guðmundur unnið með viðskiptavinum fyrirtækisins, þ.m.t. Hitaveitu Suðurnesja, Landsvirkjun, Ratstjárstofnun, Orkuveitu Reykjavíkur, Farice og RARIK.

Áki Pétur Gíslason, kerfisfræðingur, aki(hjá)dmm.is. Áki útskrifaðist með kerfisfræðigráðu frá Tölvuháskóla Verslunarskóla Íslands sem nú heitir Háskóli Reykjavíkur. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu frá upphafi og sérhæfir sig í umsýslu gagnagrunna ásamt forritun.

Njörður Stefánsson, BSc tölvunarfræði, MCP og MCSA, njordur(hjá)dmm.is. Njörður er kerfisstjóri DMM Lausna og gekk til liðs við fyrirtækið árið 1998. Njörður útskrifaðist með BSc gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2009. Njörður er einnig útskrifaður frá Rafiðnaðarskóla Íslands með sérfræðigráðu í netstjórnun auk MCP og MCSA gráða frá Microsoft

Vilhjálmur Skúlason, BSc tölvunarfræði, vis(hjá)dmm.is. Vilhjálmur útskrifaðist með BSc gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2002. Hann var fyrst í hlutastarfi hjá DMM Lausnum samhliða náminu og svo í fullu starfi eftir útskrift. Hann hefur tekið námskeið í MSc námi Háskólans í Reykjavík og í MSc námi Datalogisk Institut Københavns Universitet. Auk þess hefur hann verið aðstoðarkennari við Háskólann í Reykjavík í strjálli stærðfræði.

Eyþór Sigmundsson, tölvunarfræði nemi, eythor(hjá)dmm.is. Eyþór hóf nám í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík haustið 2008 og vinnur hjá okkur í hlutastarfi samhliða námi.
Þorkell Máni Gunnarsson, BSc tölvunarfræði Þorkell starfaði hjá okkur um árabil en býr nú og starfar í Bandaríkjunum. Þorkell er öflugur hugbúnaðar-arkitekt og við leitum reglulega til hans varðandi framtíðarþróun DMM og fáum hann til vinnu, skrafs og ráðagerða.