Ráðstefnan 'Stjórnun frá völdum sjónarhornum' var haldin í Eldborg Svartsengi 19. og 20. september. Á ensku bar hún yfirskriftina 'Managing changes and improving performance'.

 

Eins og yfirskriftin ber með sér, þá snérist ráðstefnan um stjórnun fyrirtækja frá mismunandi sjónarhornum. Nánar tiltekið þá var fjallað um viðhaldsstjórnun (maintenance management), breytingastjórnun (change management) og árangursstjórnun (performance management), enda eru þetta mikilvægir þættir í stjórnun margra fyrirtækja í dag á tímum örra breytinga og krafna um góða frammistöðu.

 

Fyrirlesarar hafa voru valdir af kostgæfni, þeir komu frá Íslandi, Kanada og Hollandi. Fyrri dagurinn var sniðinn að stjórnendum og sá síðari að stjórnendum og lykilstarfsmönnum á sviði viðhaldsstjórnunar, sjá ráðstefnulýsingu.

 

Hér að neðan eru myndir, sem teknar voru á ráðstefnunni.