DMM Lausnir logo

News


05. April

Selfossveitur og Árborg velja DMM

Selfossveitur bs. og Sveitarfélagið Árborg hafa ákveðið að nota DMM fyrir eigna- og viðhaldsstjórnun og var gengið frá samkomulagi þar um í höfuðstöðvum Selfossveitna í vikunni. Nánar tiltekið mun DMM verða notað fyrir hitaveitu, kaldavatnsveitu, fráveitu, lóðir, gatnakerfi og fasteignir. Hlutverk DMM verður sér í lagi að halda utan um helstu eignir sem þar koma við sögu og styðja við fjölda verkefna í daglegum rekstri sem miða að því að tryggja öruggan rekstur og góða endingu. Þess má geta að Selfossveitur hafa um langt skeið notað hugbúnaðarkerfið „Arfann“ sem er forveri DMM hugbúnaðarkerfisins frá því um 1995. Það er sérstakt ánægjuefni fyrir DMM Lausnir að fá tækifæri til að hefja nýja kafla með Selfossveitum og Árborg með mun öflugara DMM kerfi sem mun veita fleiri möguleika fyrir þá fjölbreyttu starfssemi sem hér um ræðir.

 

 

Myndin að neðan var tekin við þetta tækifæri, frá vinstri til hægri eru Kristján Jóhannesson, Grétar Lárus Matthíasson, Sigurður Þór Haraldsson, Auður Guðmundsdóttir, Jón Tryggvi Guðmundsson, Guðmundur Jón Bjarnason frá DMM Lausnum, Magnús Ingibergur Guðjónsson Öfjörð, Kristinn Grétar Harðarsson og Þorfinnur Snorrason.