DMM Lausnir logo

Fréttir


23. maí

Grænt bókhald í DMM - ný útfærsla

Ný útfærsla á grænu bókhaldi hefur litið dagsins ljós í DMM. Þetta er niðurstaða samstarfsverkefnis DMM Lausna með nokkrum helstu viðskipavinum sínum á vettvangi jarðvarmavirkjana. Útfærslan tekur mið af reynslu og þekkingu viðskiptavina okkar og teljum við að til hafi orðið virkilega einföld og praktísk niðurstaða sem hafi notagildi fyrir í raun hvers kyns fyrirtæki sem er. Líkt og svo oft áður þá er búið þannig um hnútana að auðvelt er að stilla af þessa lausn fyrir fyrirtæki í mismunandi geirum atvinnulífsins og með mismunandi þarfir, án þess að grípa þurfi til forritunar eða séraðlögunar. Lausnin er þegar komin í notkun hjá nokkrum viðskiptavinum.