Hugbúnaðarkerfi fyrir eigna- & viðhaldsstjórnun

DMM Lausnir ehf. er framsækið hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtæki með sterkar rætur.

Hvað er DMM?

Mikil ánægja notenda DMM

Hópur flottra og framsækinna fyrirtækja eiga það sameiginlegt að vera ánægðir notendur DMM hugbúnaðarkerfisins frá DMM Lausnum fyrir eigna– og viðhaldsstjórnun, heilbrigðiskerfi vélbúnaðar og fasteigna, með það að markmiði að:

  • Auka persónuöryggi

  • Auka rekstraröryggi

  • Auka sjálfbærni

  • Lengja líftíma vélbúnaðar og fasteigna

  • Lækka viðhaldskostnað

Kynntu þér ánægjurannsókn sem gerð var meðal notenda kerfisins, sjá hér

Kynntu þér ánægjurannsóknina

Fréttir

Bókanir á sérhæfðum búnaði í DMM

16. október 2026

Með "Bókanir" er hér vísað til þess að hægt er að taka frá t.d. sérstök verkfæri eða sérhæfðan mælibúnað fyrir ákveðið verk yfir ákveðinn tíma, sambærilegt og fyrir bókun fundarherbergja nema þau verkfæri og búnaður sem um ræðir er einnig skráður sem eign í DMM og fær sem slikur viðeigandi meðferð á borð við reglubundna yfirferð og kvörðun. Nú er hægt er að bóka og fá yfirlit yfir bókanir í vefgátt og appi, en það var áður aðeins mögulegt í client. Auk þess er nú hægt að halda utan um "teljanlegan" búnað, til dæmis dýr sérhæfð skilti, ljós eða merkingar sem er þá hægt að bóka tiltekið magn á verk og DMM passer upp á að ekki sé bókað of mikið á hverjum tíma.

Euromaintenance 2026

3. júlí 2026

Euromaintenance 2026 var haldin í Lulea í Svíþjóð 23. - 26. júní síðastliðinn. Euromaintenance ráðstefnan er haldin annað hvort ár og er ein stærsta og mikilvægasta ráðstefna Evrópu á sviði viðhalds- og eignastjórnunar. Eigna- og viðhaldsstjórnunarfélag Evrópu, EFNMS, stendur fyrir þessari ráðstefnu í samstarfi við "heimamenn" á hverjum tíma, sem þetta skiptið var sænska viðhaldsstjórnunarfélagið, SVUH, og tækniháskólinn í Lulea. Eigna- og viðhaldsstjórnunarfélag Íslands, EVS, er virkur aðili að EFNMS síðan 2016. DMM Lausnir eru einn af stofnaðilum EVS og er framkvæmdastjóri DMM Lausna, Guðmundur Jón Bjarnason, fulltrúi EVS gagnvart EFNMS. Það voru 6 Íslendingar sem sóttu ráðstefnuna, en alls var þar að finna um 300 sérfræðinga, fræðimenn og fulltrúa fyrirtækja og stofnana frá 39 löndum til að ræða nýjustu þróun í viðhalds- og eignastjórnun, deila reynslu og kynna lausnir sem stuðla að aukinni hagkvæmni, sjálfbærni og rekstraröryggi fyrirtækja. Á dagskránni voru fjölbreytt erindi og vinnustofur þar sem þátttakendur kynntu sér nýjustu rannsóknir, tækninýjungar og bestu aðferðir, auk þess að efla tengslanet sitt og skapa grunn að frekara alþjóðlegu samstarfi. Samhliða ráðstefnunni fór einnig fram afhending Maintenance Manager Award, sem er ein virtasta viðurkenning Evrópu á sviði viðhaldsstjórnunar. Verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur sýnt framúrskarandi árangur í stjórnun viðhalds, innleitt nýjungar og haft jákvæð áhrif á þróun greinarinnar. Gaukur Garðarsson frá Rio Tinto - ISAL var tilnefndur til þessa verðlauna og komst í hóp þriggja aðila sem teknir voru í viðtal hjá dómnefndinni en verðlaunin féllu þó öðrum í vil, fulltrúa Barilla frá Ítalíu. Við erum stolt af Gauki og er þessi viðurkenning hvatning til áframhaldandi góðra verka fyrir hann og allt það flotta fólk sem sér um eigna- og viðhaldsstjórnun hjá íslenskum fyrirtækjum, sem eru vel að merkja mikilvægir máttarstólpar íslensks samfélags. Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri til hægri, Guðmundur Jón Bjarnason DMM Lausnum, Hermundur Sigurðsson Landsvirkjun, Gaukur Garðarsson Rit Tinto - ISAL, Helgi Guðjónsson RARIK, Ingvar Hafsteinsson Landsvirkjun og Ásmundur Jónsson Alvotech.

Flottar viðbætur í Mitt DMM og DMM 4

20. maí 2026

Við vorum að senda nýjar útgáfu af Mitt DMM appinu og DMM 4 vef - application í "búðir", Play Store, App Store og Microsoft Store. Að venju eru ýmsar flottar viðbætur enda vinnum við í sama anda og einkennir góða eigna- og viðhaldsstjórnun, þ.e.a.s. í anda stöðugra framfara. Dæmi um viðbætur eru þær að við útfyllingu "gátlista" er nú er einfaldara að grafast fyrir um fyrri svör og þá sér í lagi hvort til staðar séu ólokin flögg / dæmingar. Gátlisti í þessu samhengi getur til dæmis verið reglubundið eftirlit, ástandsmat eða hvers kyns gæðamat