Euromaintenance 2026

3. júlí 2026

Euromaintenance 2026 var haldin í Lulea í Svíþjóð 23. - 26. júní síðastliðinn. Euromaintenance ráðstefnan er haldin annað hvort ár og er ein stærsta og mikilvægasta ráðstefna Evrópu á sviði viðhalds- og eignastjórnunar. Eigna- og viðhaldsstjórnunarfélag Evrópu, EFNMS, stendur fyrir þessari ráðstefnu í samstarfi við "heimamenn" á hverjum tíma, sem þetta skiptið var sænska viðhaldsstjórnunarfélagið, SVUH, og tækniháskólinn í Lulea. Eigna- og viðhaldsstjórnunarfélag Íslands, EVS, er virkur aðili að EFNMS síðan 2016. DMM Lausnir eru einn af stofnaðilum EVS og er framkvæmdastjóri DMM Lausna, Guðmundur Jón Bjarnason, fulltrúi EVS gagnvart EFNMS.

Það voru 6 Íslendingar sem sóttu ráðstefnuna, en alls var þar að finna um 300 sérfræðinga, fræðimenn og fulltrúa fyrirtækja og stofnana frá 39 löndum til að ræða nýjustu þróun í viðhalds- og eignastjórnun, deila reynslu og kynna lausnir sem stuðla að aukinni hagkvæmni, sjálfbærni og rekstraröryggi fyrirtækja. Á dagskránni voru fjölbreytt erindi og vinnustofur þar sem þátttakendur kynntu sér nýjustu rannsóknir, tækninýjungar og bestu aðferðir, auk þess að efla tengslanet sitt og skapa grunn að frekara alþjóðlegu samstarfi.

Samhliða ráðstefnunni fór einnig fram afhending Maintenance Manager Award, sem er ein virtasta viðurkenning Evrópu á sviði viðhaldsstjórnunar. Verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur sýnt framúrskarandi árangur í stjórnun viðhalds, innleitt nýjungar og haft jákvæð áhrif á þróun greinarinnar. Gaukur Garðarsson frá Rio Tinto - ISAL var tilnefndur til þessa verðlauna og komst í hóp þriggja aðila sem teknir voru í viðtal hjá dómnefndinni en verðlaunin féllu þó öðrum í vil, fulltrúa Barilla frá Ítalíu. Við erum stolt af Gauki og er þessi viðurkenning hvatning til áframhaldandi góðra verka fyrir hann og allt það flotta fólk sem sér um eigna- og viðhaldsstjórnun hjá íslenskum fyrirtækjum, sem eru vel að merkja mikilvægir máttarstólpar íslensks samfélags.

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri til hægri, Guðmundur Jón Bjarnason DMM Lausnum, Hermundur Sigurðsson Landsvirkjun, Gaukur Garðarsson Rit Tinto - ISAL, Helgi Guðjónsson RARIK, Ingvar Hafsteinsson Landsvirkjun og Ásmundur Jónsson Alvotech.

Til baka