DMM Lausnir logo

News


02. April

Dmm Lausnir í nýtt húsnæði

 

DMM Lausnir hafa flutt sig um set, frá Iðavöllum yfir á Hafnargötu 91 í Reykjanesbæ. Um er að ræða nýlega skrifstofubyggingu, þar sem DMM Lausnir eru með virkilega góða aðstöðu á þriðju hæð og gott útsýni yfir Reykjanesbæ og til sjávar út yfir Faxaflóann. Það fór vel um okkur á Iðavöllunum, en aðstaðan í þessu húsnæði er óneitanlega mun betri og hentar starfssemi fyrirtækisins betur.