
Bilanaskráningar í DMM
27. mars 2026
Bilanaskráningar eru mikilvægur hornsteinn eigna- og viðhaldsstjórnunar enda segir bilanaskráning meira en margt annað hversu vel gengið hefur, sem sagt mikilvægur þáttur í "ársreikningi eigna- og viðhaldsstjórnunar". Margir viðskiptavina okkar útfæra agaða og áreiðanlega skráningu af þessu tagi í DMM til að ná utan um áreiðanleika einstakra eigna og kerfa, tiltæki véla og búnaðar og uppitíma og afhendingaröryggi. DMM býður upp á mikinn stillanleika til að aðlaga skráninguna af þeim rekstri sem málið snýst um og þá með það að markmiði að fá markvissa skráningu og áreiðanleg gögn, sem vel að merkja verða alltaf mikilvægari varðandi úttektir af ýmsu tagi en þó fyrst og fremst sem vísbendingar um hvar er hægt að gera enn betur. Þessu tengt má nefna að til eru staðlaðar skráningar af þessu tagi fyrir tiltekin svið, til dæmis sameiginlegar truflana- og skerðingarskráningar veitufyrirtækja á Íslandi, svokallaðar START skráningar, sem mörg veitufyrirtæki skrá einmitt í DMM. START skráningar eru svo sendar rafrænt til EFLU sem heldur um skráningar af þessu tagi fyrir íslenskar veitur.
Til baka